útlitsflokkun
Útlitsflokkun á timbri
Timburafurðir sem eru nýttar í mannvirkjagerð skiptast í tvo flokka, annars vegar afurðir sem eru nýttar fyrir burðarvirki og hins vegar timbur þar sem útlit skiptir máli.
Timburafurðir eru flokkaðar samkvæmt flokkunarkerfi sem á Norðurlöndum er kallað viðskiptaflokkun og fjallað er um í bókinni Handelssortering av trävaror. Flokkarnir sem eru gefnir upp í bókinni spegla annars vegar einsleita eiginleika og einkenni barrtrjáa og hins vegar getu sögunarmylla til að framleiða í stöðugum gæðum og afgreiða timburafurðir sem uppfylla kröfur og eftirspurn neytandans samkvæmt útliti eða styrk. Á Norðurlöndum gildir þetta um viðartegundirnar skógarfuru (Pinus sylvestris) og rauðgreni (Picea abies).
Ofangreind bók hefur verið þýdd yfir á íslensku og kallast Gæðafjalir – Viðskiptaflokkun á timbri úr barrtrjám. Þar gilda flokkunarreglurnar einnig um viðartegundirnar stafafuru (Pinus contorta), sitkagreni (Picea sitchensis), evrópulerki (Larix decidua), síberíulerki (Larix sibirica) og rússalerki (Larix sukaczewii).
Staðlarnir sem viðskiptaflokkunin er byggð á eru:
- • ÍST-EN 844:2019 Trévörur – Hugtök SIS 2019.
- • ÍST-EN 1313-1:2010 Trévörur – Þversnið á söguðu timbri – Hluti 1: Barrtré, SIS forlag AB, 2010.
- • ÍST-EN 1611-1:1999 Trévörur – Sjónflokkun á viðskiptaflokkuðu söguðu timbri –Hluti 1: Evrópugreni, silfurgreni, fura, douglas fura og lerki, SIS forlag AB, 2002.
- • ÍST-EN 1611-1:A1:2002 Trévörur – Sjónflokkun á viðskiptaflokkuðu söguðu timbri – Hluti 1: Evrópugreni, silfurgreni, fura, douglas fura, SIS forlag AB, 2000.
- • ÍST-EN 14298:2017 Sagað timbur – Mat á þurrkgæðum, SIS forlag AB, 2017.
- • Norræna timburorðasafnið fyrir timburiðnaðinn – barrtré, Trätek, 2000.