Trétækniráðgjöf slf.

þar sem Eiríkur Þorsteinsson býður upp á sérhæfða ráðgjafarþjónustu í sambandi við timbur og timburvinnslu.
Á þessari vefsíðu er leitast við að veita sem bestar upplýsingar um það sem viðkemur timbri og timburvinnslu.
Hér safnast upp fróðleikur en ekki daglegar fréttir.

Fræðsla

Fræðslan inniheldur ýmsar greinar sem Eiríkur hefur skrifað í blöð og flutt á fyrirlestrum en annað útgefið efni er undir Útgáfa.
Einnig eru hér tengingar í áhugaverðar vefsíður og annað efni sem tengist okkar málefnum.

LogoMakr_6dg4zr

Flokkun á timbri

Timburafurðir sem eru nýttar í mannvirkjagerð skiptast í tvo flokka, annars vegar afurðir sem eru nýttar fyrir burðarvirki og hins vegar timbur þar sem útlit skiptir máli.
Timburafurðir eru flokkaðar samkvæmt flokkunarkerfi sem á Norðurlöndum er kallað viðskiptaflokkun og fjallað er um í bókinni Handelssortering av trävaror. Bókin hefur verið þýdd yfir á íslensku og kallast Gæðafjalir – Viðskiptaflokkun á timbri úr barrtrjám.
Flokkarnir sem eru gefnir upp í bókinni spegla annars vegar einsleita eiginleika og einkenni barrtrjáa og hins vegar getu sögunarmylla til að framleiða í stöðugum gæðum og afgreiða timburafurðir sem uppfylla kröfur og eftirspurn neytandans samkvæmt útliti eða styrk.
Flokkunin er verkfæri þar sem timbur er sagað og flokkað eftir eiginleikum timbursins.

Erasmus+ verkefninu sem hófst árið 2019 og fékk vinnuheitið TreProX og var þriggja ára verkefni er nú lokið. En Trétækniráðgjöf slf. var að vinna í því í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands, Skógræktina, Landssamtök skógareigenda, Kaupmannahafnarháskóla og Linné háskólann í Svíþjóð. Landbúnaðarháskólinn var umsóknaraðili verkefnisins og var umsjónaraðili þess og sá um verkstjórn. Sérstök heimasíða er fyrir verkefnið TreProX þar sem finna má allar upplýsingar sem varða verkefnið í framtíðinni. Bókin Gæðafjalir - Viðskiptaflokkun á timbri úr barrtrjám er fyrsta afurð verkefnisins. Fyrsta námskeiðið (workshop) var haldið á Íslandi í október 2021, annað var haldið í Svíþjóð í maí 2022 og loks var það þriðja haldið í Danmörku í september 2022. Sjá má myndir og myndbönd frá námskeiðunum á heimasíðu verkefnisins www.treprox.eu með því að smella á heitið efst í dálkinum hér.

Timburorðasafn

Timburorðasafn sem unnið var í samvinnu Norðurlandanna má finna í Íðorðasafni hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og var íslenski hlutinn unninn af Eiríki Þorsteinssyni – Trétækniráðgjöf og er hann eingöngu til í þessari netútgáfu.

Nokkuð nýtt?

Málþing um kolefnisbindingar og skógrækt – Haldið að Sólheimum í haust 2024 Í bígerð er að halda eins dags málþing um málefni kolefnisbindingar með skógrækt á skýran máta í haust 2024. Málþingið verður haldið í Vigdísarhúsi á Sólheimum í Grímsnesi og verður leitast við að kynna alla þætti sem eru í vinnslu varðandi málefnið, í hverju það felst og hverjir geti tekið þátt og haft áhrif og hverjir njóta góðs af. Meðal efnis eru margar þarfar spurningar, útskýringar og fróðleikur svo sem: • Hvernig hefur þróunin verið á kolefnismarkaði?
• Hver er og verður aðkoma sveitarfélaga, völd og skipulagsmál – Skuldbinding í loftlagsmálum, fæðuöryggi?
• Fyrir hvað stendur Kolefnisbrú og hver munurinn er á henni og öðrum álíka verkefnum svo sem Kolviði.
• Hver er þróunin með tilliti til bænda, landeigenda og fyrirtækja, fjárfesta?
• Hvers virði er skógur eða skógrækt fyrir útivistarfólk, bændur, fyrirtæki, útgerðir o.s.frv.
• Hvaða tré þarf að rækta og í hvers kyns skóga; náttúruskóga, nytjaskóga eða fjölskylduskóga og/eða annað?
• Hvaða plöntur er verið að framleiða og verður áherslubreyting inn í framtíðina?
• Hver er sýn skógarbænda á verkefnin?
• Hvernig er hægt að tengja börn og unga fólkið inn í umræðuna, þau eru skipulagsstjórar framtíðarinnar?
• Hvernig geta fyrirtæki kynnt kaup á kolefniseiningum í markaðsmálum fyrirtækisins ekki síður en hreina og klára loftslagsaðgerð?
• Hver ávinningur fyrirtækja að gerast landeigendur?
• Hvað eru kolefniseiningar?
• Kynning á viðskiptum með kolefniseiningar, kolefnismarkaðinum og hvers virði eru kolefniseiningar fyrir fjárfesta og fyrirtæki?
• Hver stýrir raunverulega kolefnismarkaðinum hér á landi?
• Hver er möguleiki útgerðarfyrirtækja í
þátttöku í verkefnum með Kolefnisbrúnni?
• Hver er framtíðin? Sjá menn breytingar í vændum og þá hverjar?
• Kynning á skógarvistfræði fyrir íbúa á Sólheimum.

Ráðstefnan Íslenskar timburvörur fyrir byggingar haldin hjá HMS þann 15.5.2024 - Tengill finnst undir Ráðstefnur á síðunni Fræðsla.

Svo eru smá viðbótarábendingar á síðunni Rétt notkun á timbri þar sem að á myndinni eru heitin á öllum hlutum húss ásamt upplýsingum um val á efni.

Ráðgjöf

Hér eru ýmsar upplýsingar um verkefni sem Eiríkur hefur unnið við varðandi
ráðgjöf við val og mat á timbri og vitnað er í skýrslur og greinar þar um.

Útgáfa

Hér eru upplýsingar og tengingar í útgefið efni sem við höfum unnið í samstarfi við aðra. Efnið hefur ýmist verið gefið út rafrænt eða á pappír eða hvort tveggja.

Myndir

Hér eru lógóin okkar og myndir sem varða verkin okkar, timbur og timburvinnslu.

Þarftu að fá upplýsingar og ráðgjöf varðandi timbur eða timburvinnslu eða fræðast nánar um málið? 

Endilega hafðu samband: timbur”hjá”timbur.is/eiki”hjá”timbur.is eða við Eirík í síma 892-1248.  

Á þessari vefsíðu leitumst við eftir að veita sem bestar upplýsingar um það sem viðkemur timbri og timburvinnslu. 

Hér safnast upp fróðleikur en ekki daglegar fréttir.

 

Search
Close this search box.

12.07.2024

Tengsl

Trétækniráðgjöf slf. 
Laugarásvegi 47
104 Reykjavík

Sími: 892 1248

Netfang: timbur “hjá” timbur.is

www.timbur.is

Banki: 515-26-680212
Kt. 680212-2010
Vsk. 110380

Contact Info

Wood Technology 
Laugarásvegi 47
104 Reykjavík
Iceland

Telephone: +354 892 1248

E-mail: timbur “at” timbur.is

www.timbur.is

Bank Information: IBAN:
IS03 0515 3871 2172 6802 1220 10

Scroll to Top