viðarmiðlun
Viðarmiðlun á Íslandi
Viðarmiðlun er félag fagmanna í flettingu á viði þar sem fagmenn hafa öðlast réttindi við mat á viði og mega eiga viðskipti með.
Viðarvinnslur eru víðsvegar um landið og þeim á eftir að fjölga enda áhugi á íslenskum efniviði vaxandi.
Aðdragandi Viðarmiðlunar er samstarf eftirfarandi stofnana:
Bændasamtök Íslands, búgreinadeild skógarbænda
Land og skógur
Skógræktarfélag Íslands
Trétækniráðgjöf slf.
Iðan fræðslusetur
Viðarmiðlunin hefur aðsetur hjá Skógræktarfélagi Íslands: skog.is/vm
Eftirfarandi fyrirtæki hafa sóst eftir því að taka þátt í félaginu Viðarmiðlun. Félagið skiptist upp í fimm deildir eftir landshlutum:
Vesturland
Skógræktarfélag Borgarfjarðar
Norðurland
Skógræktarfélag Eyfirðinga
Silfrastaðir
Land og skógur – Vaglir
Höfuðborgarsvæðið
Skógræktarfélag Reykjavíkur
Austurland
Skógarafurðir ehf
Ilmur
Land og skógur Hallormsstað
Suðurland
Skógræktarfélag Árnesinga
Land og skógur Þjórsárdal
Land og skógur Haukadal
- 1. Íslenskt timbur fyrir íslenskan markað en ekki til útflutnings.
- 2. Námskeið sem tryggir fagleg vinnubrögði - Iðan fræðslusetur.
- 3. Markaðssetning og sala er á herðum hverrar vinnslu fyrir sig.
Hvernig virkar viðskiptamódelið? – Það er maður á mann viðskipti:
• Þú átt boli og þú sagar þá og byggir hús fyrir þig.
• Ég á boli, fæ þig til að saga þá fyrir byggingu sem ég er að byggja.
• Jón á boli, selur mér þá og þú sagar þá í byggingu sem ég er að byggja.
• Þú átt skógarreit sem þarf að fella, Jón á græjur til að fella og fær boli upp í kostnaðinn. Gvendur kaupir bolina og lætur þig saga efni í byggingar sem Gísli er að byggja.
• Þú sagar ekki boli í burðarvið sem fara á byggingavörumarkaði né til útflutnings því þá þarf að CE-merkja efnið.
• Þú þarft að hafa próf í flokkun á timbri og viðurkennda framleiðsluhandbók frá IÐUNNI til þess að geta gert þetta
- Drög að samþykktum Félags sögunarmyllueigenda -> Viðarmiðlunar
- Framleiðsluhandbók - Texti
- Framleiðsluhandbók - ÍST-INSTA 142:2009 - Glærur
- ÍST-INSTA 142:2009 - Staðallinn með töflum
- ÍST-INSTA 142:2009 - Töflur
- Fundur á Reykjum 9.10.2025 - Myndband af fundinum
- Fundur á Reykjum 9.10.2025 - Glærur EÞ frá fundinum
- Fagráðstefna LOGS 18.-19. mars 2026 - Glærur EÞ á ráðstefnunni
Sagan:
Þann 20. ágúst 2025 var haldinn fundur í Végarði í Fljótsdal þar sem mættir voru timburframleiðendur á Austurlandi sem saga timbur úr íslenskum skógum, skógarbændur, bæjarstjórar og byggingarfulltrúar á Austurlandi ásamt þeim Hlyni Gauta Sigurðssyni og Eiríki Þorsteinssyni sem eru verkefnastjórar í HMS-Asks verkefninu „CE-merkingar fyrir viðarvinnslur“
Markmið fundarins var að gera grein fyrir stöðu verkefnisins CE-merkingar fyrir viðarvinnslur og leggja drög að stofnun samtaka um vinnslu á burðarvirki úr íslensku timbri.
Hér er texti bréfs sem Hlynur Gauti sendi út þann 9. október 2025 til hagaðila hins áætlaða félags.
“Ágæta timburvinnslufólk, skógræktarfólk og tæknimenn sveitarfélaga.
Hér neðar er tengill á upptöku af fundinum sem var á Reykjum í gær. Þar segir Eiríkur frá hugmyndum og aðdragandanum á 25 mínútum.
Tveir fundir hafa nú verið haldnir, á Austurlandi 20. ágúst og á Suðurlandi í gær 9. okt. Við eigum enn eftir að funda með Norðlendingum og Vestlendingum en sá fundur verður boðaður innan tíðar.
Ástæðan fyrir fundunum er að kynna og kanna áhuga á stofnun félags sem heldur utan um sögun timburs á Íslandi.”
Tilgangur þessa félags er fyrst og fremst að vera vettvangur fyrir fólk í viðarvinnslu sem stunda fagleg vinnubrögð við gæðaflokkun og sögun íslensks timburs.
Ástæðan fyrir því að þið ættuð að finnið þörf á því að starfa með félaginu eru:
- Íslenskt timbur fyrir íslenskan markað -> Lögð verður áhersla á að geta framleitt timbur sem verður notað fyrir íslenskar byggingar úr íslenskum skógum.
- Námskeið -> Með samvinnu við Iðuna fræðslusetur verður séð til þess að viðhalda þekkingu á timbri og vinnslu.
- Markaðssetning -> Fyrirtækin/félögin geta að eigin ósk markaðssett viðarvörur sínar í gegnum starfsemi okkar og rásir. Þarna næst heildarsýn yfir þá vöru sem er á markaðinum.
- Þekking á rekstri, timbri og vélum -> Ertu að hugsa um að kaupa sög eða stofna trésmíðafyrirtæki? – Við getum veitt ráðgjöf.
- Viðskiptaþróun -> Viltu auka arðsemi, stækka viðskiptavinahópinn þinn eða skera niður álagstoppana? – Við vitum hvernig.
- Námsheimsóknir -> Námsheimsóknir okkar gefa hugmyndir og skipst er á reynslusögum.
- Norrænt samstarf
Þeir sem geta orðið félagar eru:
Fyrirtæki/félagasamtök sem starfa við sögun á timbri og hafa viðunandi þekkingu á viðfangsefninu. Einnig geta skógræktarfélög, skógarbændur, arkitektar, skógræktar- og viðarvinnsluáhugafólk, tæknimenn sveitarfélaga og aðrir hagaðilar verið félagar. Vægi félagsaðildar verður ákveðið á aðalfundi þegar þar að kemur.
Seinna í þessum mánuði munum við vera með tölvufund/staðarfund þar sem við munum svara spurningum og í framhaldi munum við senda út umsóknarblöð um þátttöku í félaginu. Nánar auglýst síðar.
Látið endilega boðið berast. Endilega deilið þessum pósti til fólks sem þið teljið að gæti átt erindi eða haft gagn af. Við viljum helst engan skilja útundan.
Vonandi tekst okkur að halda stofnfund félagsins fyrir áramót.
Bestu kveðjur,
Eiríkur Þorsteinsson og Hlynur Gauti Sigurðsson.
