Um okkur

Eiríkur Þorsteinsson

Eiríkur er húsgagnasmíðameistari og trétæknir að mennt með víðtæka starfsreynslu á sviði ráðgjafar, kennslu tengdri trétækni og stjórnun.
Hann var í námi við Teknologisk Institut þar sem hann stundaði nám við vél-trésmíði og síðan trétækninám.
Hann hóf störf hjá Trésmiðjunni Völundi að loknu námi sem framleiðslustjóri. Á þessum tíma var innflutningur á timbri frá Rússlandi ráðandi og var ástand þess mjög misjafnt og voru þar verkefnin: þurrkun á efninu og flokkun.
Einnig var Völundur að byggja verksmiðjuhús í Skeifunni 19 og sá Eiríkur um að skipuleggja hurða- og gluggasmiðjuna þar.
Eiríkur var í námi hjá Erik Borsholt cand. silv. við Dansk Teknologisk Institut að læra rekstur og eftirlit með gagnvörn. Hann setti upp fyrsta gagnvarnartankinn á Íslandi hjá fyrirtækinu Völundi árið 1971 og sá um rekstur hans sem framleiðslustjóri þar í fjögur ár. Einnig var í hann í námi hjá prófessor Thomasi Thomassyni í þurrkun á timbri. Sú menntun nýttist vel við að stjórna þurrkun á timbrinu frá Rússlandi.

Eiríkur starfaði í þrjú ár við framleiðslustjórnun hjá Kristjáni Siggeirssyni hf.sem framleiddi á þeim tíma ýmis húsgögn fyrir heimili og skrifstofur.

Hann var deildarstjóri Trétæknideildar Iðntæknistofnunar Íslands og síðar hjá byggingardeild Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins. Hann var þá í samvinnu við aðra um eftirlit með gagnvarnartækjum sem þá voru starfandi á Íslandi. Breyting varð á byggingareglugerðinni 1997 og allur burðarviður skildi styrkflokkaður. Trétæknideild Iðntæknistofnunar Íslands sá um að byggja upp þá þekkingu hjá þeim fyrirtækjum sem voru að selja timbur. 
Árið 1991 var Eiríkur fenginn til að byggja upp þekkingu á vinnslu og flokkun á timbri og einnig að sjá um eftirlit í fyrirtækjum í Lettlandi, Eistlandi og Litháen sem voru að selja burðarvið og gagnvarið efni til Íslands.

Hann hefur sérhæft sig í flokkun á timbri í samvinnu við fyrrum Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins (Rb), síðar Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMI) sem sá um að votta fyrirtæki í flokkun á timbri og haldið námskeið þar um bæði á Íslandi sem og erlendis t.d. í Lettlandi á vegum BYKO hf., í Eistlandi á vegum Húsasmiðjunnar hf. og í Litháen fyrir Quercus. 

Eiríkur var um árabil fulltrúi Íslands um timburmálefni í norrænu samstarfi hjá Iðnþróunarsjóði Norðurlanda, Nordisk industrifond, sem nefnt var Nordic Wood og einnig starfaði hann sem ritari Norræns límtréseftirlits í nokkur ár.

Hann var verkefnisstjóri í verkefninu Vinnsla og grisjun í samvinnu BYKO hf og Skógrækt ríkisins (nú Land og skógur) í umsjón Námsgagnastofnunar og styrk frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.
Afurðin var ritið Skógurinn og nýting hans þar sem hann var einn af meðhöfundum ritsins.

Einnig hefur hann verið aðalhöfundur ritsins Rétt notkun á timbri sem Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, BYKO hf og Húsasmiðjan hf gáfu út í sameiningu 1991 og aftur 2002 ásamt því að hafa ritað fjölmörg svokölluð Rbblöð um timbur sem Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins gaf út.

Hann vann að útgáfu Norræns timburorðasafns, sá um íslenska hlutann og er sá nú í Íðorðasafni hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Eiríkur stofnaði Trétækniráðgjöfina árið 1998 á eigin kennitölu en það breyttist árið 2012 þegar hún varð samlagsfélag, Trétækniráðgjöf slf., og hefur hún verið hans atvinna eftir að hann komst á eftirlaunaaldur árið 2019 og hætti hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands en þar var hann gæðastjóri og ráðgjafi við byggingar.

Stærsta verkefni Eiríks/Trétækniráðgjafar slf.  í TreProX, Erasmus+ samstarfsverkefninu með Landbúnaðarháskóla íslands, Skógræktinni, Linné háskólanum í Svíþjóð og Kaupmannahafnarháskóla  var að þýða handbókina Handelssortering av trävaror úr sænsku og heitir hún Gæðafjalir – Viðskiptaflokkun á timbri úr barrtrjám og kom út í nóvember 2020 á vegum Landbúnaðarháskólans. Bókin er notuð sem kennslugagn á námskeiðum Iðunnar fræðsluseturs í styrkflokkun á timbri.

Eitt af nýjum stærri verkefnum Eiríks var gerð námsgagna og kennslumyndbands um styrkflokkun á timbri í samstarfi við Iðuna fræðslusetur um flokkun á timbri út frá bókinni Gæðafjalir og staðlinum ÍST-INSTA 142.
Fyrsta námskeiðið hófst 13. janúar 2025 og má fræðast nánar um það á þeirra vefsíðu. Nú í tengslum við Viðarmiðlunina hefur fjöldi manna sótt námskeiðið og tekið prófið í styrkflokkun á timbri og öðlast þar með réttindi til að flokka burðarvið úr íslenskum skógum til notkunar innanlands.

Síðan ber að geta verkefnisins CE merkingar fyrir viðarvinnslur sem vinna með íslenskan efnivið á vegum Bændasamtaka Íslands og hlaut vilyrði fyrir styrk úr úthlutun Asksins, Mannvirkjarannsóknarsjóði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Vonast var til að verkefninu lyki á árinu 2025.

Breyting varð á þessu verkefni og var ákveðið að fylgja fyrirtækjum á hinum Norðurlöndunum sem kalla sig smasagarna og hefja framleiðslu á burðarviði úr íslenskum skógum til notkunar innanlands. Nánari upplýsingar um verkefnið sem kallast Viðarmiðlun er undir flipanum Flokkun á timbri hér á þessum vef.

Eitt verkefni enn, sem nú er í deiglunni er undirbúningur að næsta  Málþingi um kolefnisbindingu sem haldið var haustið  2025 að Sólheimum í Grímsnesi. Reiknað er með að næsta málþing verði haldið í haust 2026.

Eiríkur Þorsteinsson

Hulda Halldórsdóttir

Hulda Halldórsdóttir

Við hjónin Eiríkur og Hulda höfum rekið Trétækniráðgjöf slf. frá stofnun 2012 og reyndar frá því að Eiríkur hóf þessa ráðgjafarstarfsemi undir sínu eigin nafni í byrjun 1998. Við höfum bara verið tvö í þessu en notið góðrar aðstoðar fjölskyldunnar og vina þegar þarf. Vinna fyrir Trétækniráðgjöfina hefur alltaf verið í hjáverkum og því ekki verið unnið við vefsíðuna nema þegar tími gafst.

Ég sé um heimasíðuna og safna þar inn ýmsum fróðleik um timbur og timburvinnslu og öðru efni sem við teljum áhugavert fyrir okkar markhóp og aðra sem síðuna skoða. Við ákváðum að síðan yrði safnsíða þar sem fróðleikur safnaðist upp en ekki vera að eltast endilega við nýjungar en reyna þó að koma þeim til skila eftir hentugleika.

Ég hef líka séð um ýmsa aðra þætti svo sem bókhaldið, yfirlestur og aðstoðað við þýðingar sem Eiríkur hefur verið að vinna við að þýða fyrir íslenskan markað.

Við eigum góða aðila að  á hinum ýmsu sviðum, bæði varðandi allt sem viðkemur timbri og timburvinnslu, skógrækt, skipulagi, menntun, fjölmiðlun og lögfræði og nýtum okkur það eftir megni.

 

Scroll to Top